Í dag er ég með forgjöfina 28 (rétt tæplega). Markmiðið var að fara niður fyrir 20 í haust. Til þess þarf ég að ná a.m.k 8 höggum af hverjum hring. Það er meira en að segja það og ég þarf að koma mér upp einhverju skipulagi til að ná þessum höggum af.
Ég er búinn að æfa púttin vel og er með 2,2 pútt að meðaltali á hring. Ég er nokkuð viss um að þar geti ég ennþá náð tveimur höggum af á hring.
Fleygjárnin hafa verið mér erfið þetta vorið, en ég hef sett nokkurn tíma í að æfa þau og sýnist mér að það sé að skila sér og reikna ég með að þar ætti ég hæglega að geta fundið önnur tvö högg.Drive út í kál hefur tekið af mér 2-3 högg á hring. Ég er núna að vinna með nýja uppstillingu fyrir framan boltann, reyna að nota mjaðmirnar meira og seigla með vinstri þannig að skífan á úrinu vísi í átt að boltanum. Þetta á eftir að taka mig nokkrar vikur og líklega fjölga höggum í millitíðinni. En ég held að þetta sé rétta leiðin fram veginn.
Stærsta vandamálið hafa þó verið járnin. Hér vantar stöðugleika. Ég hef verið nokkuð einbeittur í að fá lengd í járnin mín en nú held ég að það væri nær fyrir mig að velja eina vegalengd á hvert járn.
9i = 90-110m
8i= 110-130m
7i= 120-140m
Önnur járn er ég ekki að nota á vellinum. Ef ég einbeiti mér að því að slá þessi járn alltaf jafn langt, áreynslulaust og beint, þá ætti ég að fá a.m.k tvö högg á hring þar. Aukum vegalengdina svo næsta vetur.
Að lokum er það 3h kylfan. Hún er alskonar og getur gefið mér 200m en oftast á bilinu 150-180 m með örlitlum hægri sveig. Nota hana á par 5 eða þegar driverinn er of stuttur.
Ég á stefnumótinu við Kötu kennara á mánudag. Ætla að ræða þetta plan við hana sem og að æfa driver.
Kem til með að uppfæra næstu daga
No comments:
Post a Comment