Þrátt fyrir að ég hafi í upphafi verið lokkaður til að taka til við bloggið og gert það með hangandi hendi í fyrstu, þá fór það að lokum svo að ég átti nánast ekki í samskiptum við fólk öðruvísi en í gegnum þennan miðil. Ef svo ólíklega vildi til að ég hitti lifandi fólk var það aðeins til þess að ræða um góðar færslur hinna og þessrra sem maður hafði lesið í vikunni.
Eftir að ég tók upp Gmail og Gmail tók yfir blogspot fóru furðulegir hlutir að gerast sem svo enduðu með skelfingu. Ég get í dag loggað mig inn á gamla bloggið mitt og má breyta öllu um mig þar inni en ég get ekki sett inn nýja færslu, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Að lokum flutti ég mig yfir á moggabloggið sem var eins og að fara frá París til færeyja, úr Kópavogi í Breiðholt (og svona mætti lengi telja). Allavegana var ég ekki heima á mogganum og færslur urðu fáar og slakar.
Ég hef nú í örvæntingu ákveðið að opna nýjan reikning með sterka vísan í gamal bloggið mitt og stendur von mín til þess að geta flutt í fyllingu tímans gömlu færslurnar mínar hingað yfir, eða, sem væri betra ég get komist inn á mitt gamla góða blogg.
2 comments:
Velkominn til baka lagsi, skrifaðu nú sem aldreigi fyrr!!!
Velkominn aftur.
Hlakka til að fylgjast með þessu nýja bloggi. Hélt hreinlega að þú værir hættur fyrir fullt og allt í bloggheiminum. En er glöð að sjá að svo er ekki.
Post a Comment