Saturday, June 28, 2025

Meistaramót dagur 1 Leikplan

Þér er hér með fyrirgefin öll þau afglapa högg sem þú átt eftir að slá á þessum hring. Mundu eftir að njóta þeirra sem takast vel og vera þakklátur fyrir þau högg sem færðu þig nær holu. 


Hola 1

Driver ekki of langur helst að nota 8i til að fara yfir

Ekki slá of fast. Var ákveðið


Hola 2

Driver gott að vera aðeins hægri bara ekki ofan í gilinu. Rennan vinstramegin er ok


Hola 3

 9i dugar og ekki reyna að ná inn á flöt. 30-40m fyrir utan er fullkomið fyrir þig 


Hola 4

Líklega 7i. Aftur ekki of fast betra að vera stuttur og lenda fyrir framan


Hola 5

Driver. Ef þú ert undir brekkunni þá 7i. Annars 3h. Sama með högg nr. 3


Hola 6

3h högg nr2 á að fara í brekkuna ok að vera of langur


Hola 7

Létt 9i 

Ok að vera of stuttur eða vinstra megin


Hola 8

Driver + 3h + járn


Hola 9

Driver vel til vinstri


Hola 10

Brautin er slétt neðst. Notaðu 3h. Járnin hafa verið að svíkja þig hér og þú vilt ekki vera í halla þegar þú slærð


Hola 11

3h og miða hægri. Brautin er of þröng og þú vilt helst ekki vera of mikið til vinstri og Driver getur komið okkur í ves 🙂


Hola 12

3h inn á, 3h og svo járn. 


Hola 13

Driver og svo bara sjá til. Nota kíkinn til að meta högg nr. 2


Hola 14

Driver er ok hér 


Hola 15 

Par 3 bara eitthvað en vera fyrir framan. 30-40 eftir inn á flöt er ok ❤️


Hola 16

Driver miða á seinni bönkerana


Hola 17

3h og bara vel til vinstri þarf ekki að vera fast.  2 auka járnahögg út á braut er ok


Hola 18

8i eða 7i held jafnvel að 8i sé betra







Thursday, June 26, 2025

Suma daga vaknar maður fullur sjálfstraust...

 


…þá er gott af fara í golf til að ná þeim ranghugmyndum úr höfði sínu.

Var með leikplan, sem ég varð að yfirgefa strax á fyrstu holu.  Kom svo í ljós seinna að það var bara ekki gott plan.

Ég er verri með járnin mín núna en ég var síðasta sumar.  Það held ég að sé 90% andlegt, þarf að slaka betur á og muna að hafa gaman af leiknum.  Ég er bara með 28 í forgjöf og golfið mitt eftir því.

Er með 2,13 pútt í leik að meðaltali, en síðustu tveir leikir hafa verið 1,94.  Þetta er á réttir leið, vildi að ég ætti mælingu fyrir vippin, en þau eru líka nokkuð góð. 

Meistaramótið um helgina, ég ætla að taka mér frí á morgun og vinna aðeins í andlega þættinum.

Wednesday, June 25, 2025

Auðveldar um að tala en í að komast



Í síðust færslu lagð ég upp með plan til að skafa 8 högg af 18 holu leik.  Stutt samantekt væri eftirfarandi:

Laga drive 2 högg

Beinni járnahögg á kostnað lengdar 2 högg

Nákvæmari vipp 2 högg

Pútt 2 högg

Fór og hitti golfkennar sem hjálpaði mér mikið með sveifluna í járnahöggunum og gaf mér góðar leiðbeiningar varðandi uppstillingu fyrir faman boltan.  Ég er ekki frá því að þetta hafi hjálpað á æfingarsvæðinu.

24. júní fór ég svo á teig á Hlíðarvelli og var spenntur fyrir því að sjá hvort þessar leiðréttingar hjálpuðu eitthvað.  Ég vil leggja smá áherslu á orðið "spenntur" hérna.  Ef einhver er að lesa, þá má hafa það í huga fyrir samantektnina.

Loka niðurstaða var 107 högg, en meðal pútt 1,94.  

Töpuð högg sem ég get gert eitthvað í

Hola 5 of laust vipp ofan í bönker 1 högg

Hola 9 víti eftir geggjað drive .þegar ég sló boltann of laust og setti ofan í vatn. Hefð getað sparað mér amk 1 högg

Hola 11 víti eftir drive sem fór vinstramegni út í hátt gras.  Hefði átt að taka víti og þannig sparað mér 1 högg, en ég var fáránlega heppinn þar svo það er ekki víst.

Hola 12 þar á ég að nota 3h til að koma mér inn á braut og taka svo 2x 7i.  Það dugar inn á flöt og ég get klárað með skolla eða skramba.  En get varla sagt að ég hafi tapað höggi þar

Hola 16.  Ætti að vera 3h inn á braut, 7i næst vipp og 2x pútt er skrambi.  Þarna hefði ég getað tekið 3 högg af með smá skynsemi

Hola 17. Lendi oft í að fara í klettana, taka 3h og 7i vipp og 2xpútt 1 högg þar

Annað var bara klaufaskapur sem ég ræð ekki við enn þá.  Kemur vonandi með æfingu.  

7 högg af með smá skynsemi og ég hefði endað með 34 punkta en ekki 28.  

Hér fyrir neðan má sjá lýsingu á hverri holu fyrir sig með mínum vangaveltum.  


Hola 1.

209m drive boltinn endaði alveg á brún gilsins þar sem ég rétt náði að standa yfir boltanum til að slá hann.  Legan samt góð og ekki nema uþb 120 metrar í flaggið.  Þetta er uppáhalds höggið mitt, bara létt 9i.  Ég sjankaði boltan yfir gilið í hátt gras við teiginn á holu 2.  Sjankaði það líka í hátt gras hægramegni við teig.  Fann boltann og kom honum úr grasinu yfir flötina þannig að ég þurfti að vippa einhverja 30m inn á hana.  Það tókst ágætlega þannig að ég var inn á flöt en langt frá pinna.  Þurfti 3 pútt til að klára á 8 höggum.  Hér var púlsinn orðinn nokkuð hár og en ég var svektastur með að hafa púttað þrisvar sinnum.

Hola 2.

Drivið lágt út til vinstri 153m sem er ok því við erum að fara uppeftir.  Boltinn lág ofan í dældinni milli holu 2 og 3 í örlítið djúpu grasi en vel sláanlegur.  Þarna var ég ekki að hugsa um neitt annað en hvernis síðust tvö járahögg höfðu farið í rugl, Toppaði boltann þannig að hann rúllaði 30m áfram ofan í bunker sem ég hef aldrei séð áður.  Þaðan þurfti ég tvær tilraunir til að komast upp úr, og átti þá um 50m eftir.  Átti gott vipp en það var ögn langt þannig að ég fór yfir flötina.  Vippaði stutt inn á og kom boltanum niður í fyrst pútti.  Aftur 8 högg, ekki byrjunin sem ég hafði séð fyrir mér. 

Hola 3. 

Nú var mér í alvörunni flökurt þar sem ég stóð yfir boltanum.  Hola þrjú er par 3, 130m löng ögn niðurá við en flötin er upphækkuð og mikilvægt að lenda á henni eða rétt fyrir framan.  ég valdi 8i, því það spilast 120-140m hjá mér, sérstaklega í ljósi þess að ég ætla að draga úr högglengd og reyna frekar að fara beint.  Smell hitti boltann, og dró hann til vinstri 152m sem er mjög langt fyrir áttuna.  náði að klára á 5 höggum þar sem fyrsta vipp náði ekki alveg inn á flötina.  2x pútt

Mér er farið að líða aðeins betur hér eftir að hafa ekki sjankað boltann út í drasl á holu 3 og var tilbúinn í holu 4 sem líka er par 3.

Hola 4.  140m flöt braut, römmuð inn með fjórum bukenrum.  Dró boltann aftur til vinstri rúma 140m, notaði líklega 7i, en man það ekki.  Tvö vipp og 1 pútt, gáfu skolla sem ég er alveg sáttur við og sá fyrir mér að ég væri kominn í gang.

Hola 5. Löng par 5 sem endar upp á hæð, og gefur mér oftast eitthvað ves.  Hér kemur þörfin til að slá fast sterkt yfir mann, því þetta er langt og upp í mót, og það er sú tilfinning sem veldur líklega mesta skaðanum.  Fyrsta högg 45°til vinstri út í kálið.  Þriðja högg strikabeint 199m og liggur undir hæðinn fyrir framan vatnið á 6. braut.  tek 7i og sem hég hitti vel (hélt neðarlega á skaftinu, því boltinn er aðeins ofar) 125m inn á miðja braut.  Á 135m eftir og slæ með 7i aftur, núna leitar boltinn til vinstri og ég rétt slepp við bönkerinn en er á góðum stað til að vittpa inn á flöt.  Vippið er of laust þannig að boltinn lentir í hlíðinni og rúllar ofan í bönker.  Næ mér ágætlega upp úr honum en er pirraður yfir að hafa búið mér til þetta auka vesen.   Tvípútta og er kominn með 9 högg því ég tók víti.  Fjórir punktar komnir í hús eftir fimm holur, ekki gott.  

Hola 6.  Ef maður er of mikið til hægri þá lendir maður niðri í hlíðinni þar sem erfitt og blint er að slá á flötina, ef maður hittir driver vel, þá getur maður hreinlega farið ofan í vatnið.  Ég tók því 3 hybridinn minn, en hann er ofstast beinn og fer 180 - 200m.  Toppaði boltann og hann rúllaði 106m og lak niður hlíðina, 140m eftir og ég ekki þar sem ég vildi vera.  

Sló með 71 og lenti í flatarkantinum, vel sáttur við þetta högg. Þurfti að vippa inn á, 2 pútt, fimm högg.

Hola 7. par 3 101m.  52 gráður beint inn á flöt.  Þurfti að pútta 4m niður og var of langur, þannig að tvö pútt til viðbótar þurfti til að klára.  Ekki sáttur með það, en skolli er mitt par. 

Hola 8. Hér átti ég gott drive 194m, 7i 118m (til vinstri), 9i 105m vinstra megin við flöt.  Stutt vipp 2x pútt.  Skolli aftur og ég bara sáttur. 

Hola 9.  Setti boltann á tánna á driver og sló út í kálið mitt á milli holu 9 og 10.  Fann boltann í djúpu grasi og ákvað að slá með 9i.  

Hafð átt gott spjall við sona minn deginum áður þar sem hann talaði um að hafa tekið víti í svipaðri stöðu. Mótspilarinn hefði ekki gert það og endað á að tapa tveimur höggum í grasinu. Boltinn var utan við rauða hæla og ég hefði hæglega geta tekið hann 10m aftur inn á flöt.  Ég ákvað samt að slá hann og setti hann 20m og var ennþá í djúpu grasi.  Hitti betur næst en var bara 50m áfram og átti fullt eftir.  Vippaði 32m sem var og stutt svo ég þurfti eitt vipp í við bót inn á flöt.  Fimm högg kominn, eitt pútt til að setja niður fyrir skrama.  Hefði ég átt að taka vítið og ná inn á flötina?  100%

Hola 10.  Hér fór allt í rugl og hausinn með.  Notaði 7i til að fara inn á miðja braut.  Endaði ögn vinstramegni í dýpra grasi en ekki nema 120m eftir, létt 9i.  Hitti ekki boltann og rúllaði honum 20m áfram.  Hér voru þá ekki nema tæpir 100m eftir niður í móti og 9i of stórt (hér átti ég að hafa vit á að nota 9i og slá 70%) svo ég tók 52°.  Sló henni í jörðina, fór of stutt, í grjót, þaðan yfir í skurðinn, lent á grjóti og skoppaði inn á aftu.  Smá heppinn þar :)

Vippaði inn á flöt, 2x pútt skrambi 

Hola 11. Sló til vinstri og missti boltann út í hátt gras með klettabelti á vinstri hlið.  sló boltan upp úr 32m inn á braut.  Nú eru 180m eftir svo ég tók 3h, sló honum til vinstri þannig að hann fór í klettana og skoppaði yfir á brautar enda 50m frá pinna. Ég svolítið mikið að vinna með landslagið í brautinni.  Vipp inná og 2x pútt skrampi 

Hola 12 par 5.  Driver slæsaður út í grjót sem aftur ákvað að vinna með mér, boltinn skoppaði inn á miðja braut.  Við tóku tvö arfaslök hibrid högg sem saman skiluðu mér 220m (ég hefði farið nær 300 með 7i).  Átti tæpa 100m eftir inn á flöt, reyndi að vippa mér inn á en þurfti tvær tilraunir og 1xpútt. Skrambi enn á ný.

Hola 13 par 5.  Solid 200m drive á besta stað.  Stend upp á hæðinni á 240m eftir og ákveð að nota 3h til að koma mér að flötinni.  Sló boltann til hægri í kríuhreiður.  Eftir smá leit (fann 5 bolta) og slagsmál við 30 kríur, ákvað ég að taka víti.  Sló inn á flöt, 2x pútt skrambi

Hola 14.  Stulaður driver 209m inn á miðja braut.  100m eftir, létt 9i aðeins of langur og vinstramegin við flöt í mold.  Boltinn lá illa svo ég þurfti tvær tilraunir til að vippa honum inn á flöt, og endað svo á að 3x pútt (sat alveg á brúninni eftir pútt 2). Endaði með 7 högg, mjög pirrandi.

Hola 15 par 3.  170m í pinna, ákvað að nota 3h og hitti vel (of vel), fór yfir pinnan og endaði upp á hól við bönker.  Vipp og 2x pútt, skolli

Hola 16.  Þessi er í smá uppáhaldi hjá mér en í dag var hún ekki í stuði.  Sló á tánna og missti boltann of mikið til hægti.  Týndur bolti, tek víti við rauðahæla 90m frá pinna en á bak við tré sem ég þarf að komast yfir.  Tek 52° og lem upp torfu, á stærð við japanskan smábíl.  Nú er ég orðinn pirraður og ákveð að taka annað víti og slá sama bolta aftur.  Tekst lítið betur, vippa inn á flöt og 3xpútt enda með snjókall.

Hola 17.  Slæs í klettana sem í þetta sinn gefa ekkert, týndur bolti.  Tek víti 170m frá pinna.  Reyni að ná yfir með 7i, boltinn lendir nánast undir grjóti, tek annað víti 1xpútt skrampi

Hola 18 par 3.  7i 140m í flatarkanti nota pútter til að koma mér nær, en er of laus.  2x pútt til að klára á skolla.  


Saturday, June 21, 2025

Golf

 Í dag er ég með forgjöfina 28 (rétt tæplega). Markmiðið var að fara niður fyrir 20 í haust. Til þess þarf ég að ná a.m.k 8 höggum af hverjum hring. Það er meira en að segja það og ég þarf að koma mér upp einhverju skipulagi til að ná þessum höggum af. 

Ég er búinn að æfa púttin vel og er með 2,2 pútt að meðaltali á hring. Ég er nokkuð viss um að þar geti ég ennþá náð tveimur höggum af á hring. 

Fleygjárnin hafa verið mér erfið þetta vorið, en ég hef sett nokkurn tíma í að æfa þau og sýnist mér að það sé að skila sér og reikna ég með að þar ætti ég hæglega að geta fundið önnur tvö högg. 

Drive út í kál hefur tekið af mér 2-3 högg á hring. Ég er núna að vinna með nýja uppstillingu fyrir framan boltann, reyna að nota mjaðmirnar meira og seigla með vinstri þannig að skífan á úrinu vísi í átt að boltanum. Þetta á eftir að taka mig nokkrar vikur og líklega fjölga höggum í millitíðinni. En ég held að þetta sé rétta leiðin fram veginn. 

Stærsta vandamálið hafa þó verið járnin. Hér vantar stöðugleika. Ég hef verið nokkuð einbeittur í að fá lengd í járnin mín en nú held ég að það væri nær fyrir mig að velja eina vegalengd á hvert járn.

9i = 90-110m

8i= 110-130m

7i= 120-140m

Önnur járn er ég ekki að nota á vellinum. Ef ég einbeiti mér að því að slá þessi járn alltaf jafn langt, áreynslulaust og beint, þá ætti ég að fá a.m.k tvö högg á hring þar.  Aukum vegalengdina svo næsta vetur.

Að lokum er það 3h kylfan. Hún er alskonar og getur gefið  mér 200m en oftast á bilinu 150-180 m með örlitlum hægri sveig. Nota hana á par 5 eða þegar driverinn er of stuttur. 

Ég á stefnumótinu við Kötu kennara á mánudag.  Ætla að ræða þetta plan við hana sem og að æfa driver. 

Kem til með að uppfæra næstu daga

Sunday, October 21, 2007

Líknarm

íknarmorð


Tók þátt í þeim annars skemmtilega leik "Sing Star" um daginn. Þar sem um keppni var að ræða fengu söngvarar ekki að velja lag sjálfir heldur voru lög valiln með slembi úrtaki. Ég var svo lánsamur að fá lagið" Greatest love of all" með dífunni Whitney Huston.
Þetta lag söng ég eins og engill og komst áfram til að syngja mig inn í úrslitin.

Eftirköstin af þessum annars hrekklausa leik voru þó allt annað en falleg og næstu vikuna á eftir var ég með þetta lag algerlega á heilanum.

Mín spurning er, ef þetta hefði gengið áfram í svona viku í viðbót hefði ég þá ekki á rétt á að láta framkvæma á mér línarmorð?

Líknarmorð


Tók þátt í þeim annars skemmtilega leik "Sing Star" um daginn. Þar sem um keppni var að ræða fengu söngvarar ekki að velja lag sjálfir heldur voru lög valiln með slembi úrtaki. Ég var svo lánsamur að fá lagið" Greatest love of all" með dífunni Whitney Huston.
Þetta lag söng ég eins og engill og komst áfram til að syngja mig inn í úrslitin.

Eftirköstin af þessum annars hrekklausa leik voru þó allt annað en falleg og næstu vikuna á eftir var ég með þetta lag algerlega á heilanum.

Mín spurning er, ef þetta hefði gengið áfram í svona viku í viðbót hefði ég þá ekki á rétt á að láta framkvæma á mér línarmorð?

Sunday, October 7, 2007

Jæja....

...er ekki kominn tími til að fara og finna sér eins og eina kærustu?
Hvaða kröfur þarf svo ein svona kærasta að uppfylla?
Hún þarf að leysa fleiri vanda mál en hún kemur til með að skapa þannig að allt verði skemmtilegara ekki satt.
Æi... þetta verður bara vesen, ég er strax farinn að heyra í henni tuðandi yfir krökkunum mínum, og afherju ég taki ekki betur til og afhverju ég sé ekki með hærri laun og svona.

Best að bíða með þetta aðeins lengur ha?